Hundar eiga að vera í bandi .

Þegar eigendur fara út að ganga með hunda sína , sérstaklega í þéttbýli , er ekkert sjálfsagðara en að þeir séu í ól. Það er vitanlega krafa annara í samfélaginu. Við eigum ekki að þurfa að vera hrædd við lausa hunda þegar við fáum okkur göngutúr, hvort sem við erum ein á ferð ,með hundinn okkar eða börnin . Stórir hundar eru oft mjög forvitnir um litlu hundana og hreinlega ráðast að þeim hvort sem þeir ætla sér að leika sér með þá eða drepa þá , það er ekki í okkar valdi að geta sagt um það. Stórir hundar hafa auk þess stærðina , þyngdina og kraftinn sem er mun meiri en hjá flestum okkar þótt við teljumst fullorðin. Ég á sjálf lítinn hund sem hefur gaman af að fara í göngutúra og leika sér í garðinum okkar. Oftar en ekki hef ég þurft að vera á varðbergi hvað varðar stóra hunda sem við hittum og taka litla krílið í fangið vegna láta í þeim stóru. Eigendur virðast oft ekki ráða nægilega við hundinn sinn til að hafa hann lausan. En að hundur vaði inn í garð og ráðist á annað dýr þar er auðvitað skelfilegt. Dettur mér helst í hug að stóri hundurinn hafi ætlað þetta vera kött en eitthvað er um að eigendur ( veit ekkert hvort það eigi við í þessu tilviki )  þjálfi hunda sína í að ráðast gegn köttum , hvað sem okkur finnst svo um slíkt athæfi.

Ég vona að það fari ekki að verða hér eins og hjá konu einni í USA sem ég kannast við en hún fer alltaf með litla kylfu með sér í göngutúra með smáhundinn sinn til að verjast stórum hundum. Hún fór einu sinni mjög illa útúr árás hunds sem leiddi til dauða hennar hunds og meiðsla á henni sjálfri.

En munum að í öllum hundum býr úlfur , sama af hvaða stærð dýrið er.


mbl.is Eigandinn beinbrotnaði og tvísýnt um líf hundsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, mér finnst eins og flestir hafi gleymt því að hundar eru í eðli sínu villt rándýr. Hversu vel sem þú elur þá upp þá geturðu ekki alið þetta eðli úr þeim og það getur sýnt sig einn góðan veðurdag upp úr þurru.

En mikið vona ég að hundaeigendur séu ekki að þjálfa hunda sína til að ráðast á kisur... Mikið ofboðslega er mannskepnan vont dýr.

Dídí (IP-tala skráð) 29.8.2007 kl. 12:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband